Velkomin í MEET HER
Ekki til að verða önnur.
Til að mæta sjálfri þér.
Takk fyrir að velja að gefa þér þetta rými.
Næstu átta vikur færðu að hægja á, finna, hreyfa, hlusta, mæta sjálfri þér og taka á móti — í gegnum fræðslu, sjálfsskoðun, samtal og líkamsmiðaðar upplifanir.
Ferðalagið hefst mánudaginn 26. október með opnunarfundi á Zoom kl. 19:30–21:00. Þar opnum við rýmið saman, tengjumst hópnum og mótum persónulegan ásetning fyrir ferðalagið.
Ef þú kemst ekki á fundinn þarftu ekki að hafa áhyggjur. Hann verður tekinn upp og þú getur horft á upptökuna síðar.
Aðgangur að heimasvæðinu opnar 26. október. Þú færð einnig tölvupóst með öllum nánari upplýsingum, tengli á Zoom og því sem gott er að hafa við höndina fyrir fyrsta fundinn.
Þú þarft ekkert að undirbúa. Það er nóg að mæta eins og þú ert.
Ég hlakka ótrúlega mikið til að taka á móti þér og fara í gegnum þetta ferðalag með þér.
Hlý kveðja,
Sara