Aftur heim til þín
Frí 9D öndunarupplifun – Full System Reset
Ef þú finnur fyrir streitu, spennu eða tilfinningu að vera ekki alveg tengd/ur sjálfri/sjálfum þér —
þá býð ég þér í djúpt öndunarferðalag sem þú getur farið í heima hjá þér.
Í þessari upplifun fær líkaminn rými til að:
👉 sleppa spennu
👉 róa taugakerfið
👉 og tengjast aftur inn á við
✨ Aðeins í takmarkaðan tíma
„Ég vissi ekki hvað ég þurfti þetta mikið fyrr en ég prófaði.“
Skráðu þig hér og fáðu aðgang:
Það sem aðrir hafa upplifað:
„Ég bjóst alls ekki við þessu…
ég grét, hristist og fann fyrir djúpri losun í líkamanum.
Eftir á leið mér eins og ég væri að svífa.“
„Ég fann meiri innri ró en ég hef upplifað lengi. Það var eins og líkaminn minn fékk loksins að slaka á."
„Ég vissi ekki að ég hefði svona margar tilfinningar.
Það var svo mikill léttir að leyfa þeim að koma upp.“
Hvað er 9D breathwork?
9D Breathwork er leitt öndunarferðalag þar sem öndun, hljóð og leiðsögn vinna saman til að hjálpa líkamanum að losa spennu og tilfinningar sem hafa safnast upp.
Þú liggur með heyrnatól og ferð inn í upplifun þar sem:
✨ líkaminn fær að slaka
✨ tilfinningar fá að hreyfast
✨ og þú tengist þér á dýpri hátt
Þetta er upplifun sem sameinar líkama, huga og tilfinningar — og fyrir marga verður hún fyrsta skrefið í að finna aftur tenginguna við sjálfan sig.
Full System Reset
Þetta ferðalag er fyrir þig sem finnur að líkaminn er orðinn þreyttur á að halda áfram.
Kannski hefur þú verið á hnefanum lengi
og finnur að það er kominn tími til að hægja á.
Í þessari upplifun færðu að:
💥 losa uppsafnaða spennu
🌀 róa taugakerfið
🌱 mæta þér með meiri mildi
🔥 og tengjast aftur lífskraftinum
Full System Reset er fyrir þá sem finna að það er kominn tími til að hægja á, mæta sjálfum sér af mýkt og stíga inn í nýjan kafla — ekki með átaki, heldur með meiri ró og tengingu.
Hvernig virkar þetta?
Þegar þú skráir þig færðu strax aðgang að öndunarferðalaginu ásamt einföldum leiðbeiningum.
Þú getur farið í upplifunina á þínum tíma, í rólegu rými þar sem þú færð að loka augunum, hlusta og leyfa líkamanum að leiða þig.
Þú þarft ekki að gera þetta “rétt”.
Bara anda og leyfa.
💛 Ef þetta kallar á þig
Þú þarft ekki að vera tilbúin/n að breyta öllu.
Stundum byrjar breyting einfaldlega
með því að gefa sér rými til að anda og hlusta.
Ef eitthvað í þér segir að þetta gæti verið fyrir þig,
þá máttu treysta því.
Þekkir þú einhvern sem gæti haft gott af þessu? 👉
Endilega deildu. 💛
Mikilvægt að hafa í huga
Öndunarferðalagið inniheldur djúpa öndunarvinnu.
Ef þú ert með einhvern af eftirfarandi kvillum eða ert óviss hvort þetta henti þér, mæli ég með að þú ráðfærir þig við lækni eða hafir samband við mig:
• Flogaveiki (hentar ekki)
• Meðganga (hentar ekki)
• Hjarta- og æðasjúkdómar (hægt að aðlaga)
• Lungnasjúkdómar (hægt að aðlaga)
• Alvarleg geðræn veikindi (hentar ekki)
Ef þú ert óviss er alltaf hægt að hafa samband 💛