MEET HER
8 VIKNA NETNÁMSKEIÐ FYRIR KONUR
Ekki til að verða önnur.
Til að mæta sjálfri þér.
Átta vikna ferðalag þar sem þú færð að tengjast sjálfri þér á annan hátt — ekki bara með huganum, heldur í gegnum beina upplifun líkamans.
Þú færð að hægja á, finna, hreyfa, hlusta, mæta sjálfri þér og taka á móti.
26. október – 20. desember 2026
Fjórir Zoom-fundir í beinni · vikulegt efni á lokuðu heimasvæði · aðgangur til 17. janúar
Er MEET HER fyrir þig?
Þetta ferðalag gæti verið fyrir þig ef þig langar að:
-
finna meira öryggi í líkamanum og eiga auðveldara með að slaka á
-
vera meira til staðar í líkamanum og eigin lífi, í stað þess að lifa mest í huganum
-
heyra betur hvað þú þarft og hvað þig langar í
-
hlusta betur á innsæið og treysta því sem þú finnur og velur
-
finna meiri gleði, löngun og lífskraft í eigin lífi
-
upplifa meira frelsi til að hreyfa þig, tjá þig og vera þú sjálf
-
finna betur fyrir sjálfri þér sem konu, á þinn eigin hátt
-
gefa þér tíma til að hægja á, taka á móti og finna stuðning í hópi kvenna
Þú þarft ekki að sjá þig í öllu þessu eða vita nákvæmlega hverju þú ert að leita að. Það er nóg að þig langi að gefa sjálfri þér þessar átta vikur og vera opin fyrir að prófa ólíkar leiðir til að tengjast þér.
„Sara hefur svo góða nærveru að það er ekki annað hægt en að slaka á í tímunum hjá henni. Sefandi rödd hennar hjálpar manni að sleppa takinu og ná dásamlegri slökun.“ - Guðný
Þú heldur utan um margt, en áttu rými fyrir þig?
Þú heldur hlutunum gangandi. Þú sinnir, skipuleggur og sérð hvað þarf að gera. En dagarnir geta farið á sjálfstýringu og stundum ertu meira í höfðinu en líkamanum.
Þú tekur fljótt eftir því hvernig öðrum líður og hvað þeir þurfa, en átt erfiðara með að heyra hvað þú þarft sjálf eða hvað þig langar í. Þú saknar þess að finna meira fyrir þér og lífinu — meiri orku, löngun og tilhlökkun. Að vera meira þú sjálf og meira lifandi í eigin lífi.
Kannski þarftu einfaldlega rými til að hægja á, færa athyglina aftur að þér og finna betur hvað er til staðar.
Ekki bara að skilja — heldur að finna og upplifa
Við erum vön að leita svara með því að hugsa, greina og reyna að skilja. Það getur gefið okkur mikilvæga innsýn, en stundum þurfum við líka að hægja á og finna hvað er að gerast í líkamanum.
Í MEET HER netferðalagi notum við hreyfingu, öndun, kyrrð, skynjun og hljóð sem ólíkar leiðir inn í þína eigin upplifun. Þú þarft ekki að ná tökum á þeim eða vera góð í þeim.
Það er engin ein rétt upplifun og ekkert sem þú þarft að framkalla. Hver kona fer í sitt eigið ferðalag, á sínum hraða.
Þetta snýst ekki um að læra hvernig þú átt að vera, heldur að fá rými til að mæta sjálfri þér eins og þú ert.
Af hverju ég skapaði MEET HER
Undanfarin ár hef ég unnið með öndun, hreyfingu, yin, skynjun, kyrrð og hljóð. Þótt þetta séu ólíkar leiðir hafa þær allar hjálpað mér að hægja á, komast úr höfðinu og finna betur fyrir sjálfri mér. Ég hef lært að heyra betur hvað ég þarf og hvað mig langar í og fundið meira frelsi til að hreyfa mig og tjá mig.
Mér grunaði ekki fyrr en ég upplifði það sjálf hversu mikið tengingin við líkamann gæti auðgað lífið — ekki bara fært mér meiri ró, heldur líka gleði, löngun og lífskraft.
Ég skapaði MEET HER vegna þess að mig langar að deila þessu með öðrum konum. Ekki sem aðferðum sem þú þarft að læra eða ná tökum á, heldur sem ólíkum leiðum til að tengjast sjálfri þér í gegnum líkamann og finna hvað virkar vel fyrir þig.
Ferðalagið er líka boð um að finna betur fyrir þinni eigin upplifun af því að vera kona og tengjast kvenlegu orkunni í þér. Fyrir mér snýst kvenleg orka ekki um að vera alltaf mjúk, róleg eða á einhvern ákveðinn hátt. Hún getur birst í kyrrð og mýkt, en líka í krafti, gleði, löngun, hreyfingu og tjáningu. Hún fær að líta út eins og hún lítur út hjá þér.
Þess vegna verða vikurnar í MEET HER ólíkar. Sumar verða rólegar og nærandi, aðrar kraftmeiri og fullar af hreyfingu, tónlist og tjáningu. Saman mynda þær ferðalag sem snýst ekki bara um að finna meiri ró, heldur um að finna meira fyrir sjálfri þér og lífinu.
Mig hefur lengi langað að gera ferðalagið aðgengilegt konum óháð því hvar þær búa. Í netútgáfunni upplifum við sumt saman á lifandi Zoom-fundum og annað færðu að gera heima, á þínum tíma og í þínu eigin rými. Þannig færðu bæði samfelluna og stuðninginn sem fylgir sameiginlegu ferðalagi og frelsið til að vinna með efnið á þínum forsendum.
Vika 1 · OPEN
Vika 2 · LAND
Vika 3 · FEEL
Vika 4 · MOVE
Vika 5 · LISTEN
Vika 6 · MEET
Vika 7 · RECEIVE
Vika 8 · INTEGRATE
Ferðalagið heldur áfram alla vikuna
MEET HER netferðalag er eitt samfellt átta vikna ferðalag. Live-fundirnir og upplifanirnar eru hjartað í því, en þráðurinn heldur áfram inn í dagana á milli.
Á hverjum mánudegi opnast ný vika á heimasvæðinu. Þar finnur þú fræðslu, upplifun vikunnar, journaling-spurningar og einfaldar æfingar sem hjálpa þér að halda áfram að kanna það sem við erum að vinna með.
Sumar vikurnar hittumst við saman á Zoom. Aðrar vikur færðu upptökur sem þú getur farið í gegnum heima, á þeim tíma sem hentar þér. Þú færð einnig tölvupóst í upphafi hverrar viku sem leiðir þig inn í næsta hluta ferðalagsins.
Ég mæli með að þú veljir þér glósubók sem verður þín í gegnum þessar átta vikur. Þar geturðu skrifað niður það sem kemur upp, svarað spurningum vikunnar og geymt það sem þú vilt muna eða taka með þér áfram.
Þú þarft ekki að gera allt fullkomlega eða fylgja ákveðnum hraða. Ef ein vika verður annasamari geturðu komið aftur að efninu síðar. Eftir að sameiginlega ferðalaginu lýkur hefurðu fjórar vikur til viðbótar til að klára, endurtaka æfingar eða koma aftur að því sem var sérstaklega dýrmætt fyrir þig. Aðgangurinn að heimasvæðinu helst opinn til 17. janúar 2027.
Hvað gætir þú tekið með þér úr MEET HER?
Markmiðið með MEET HER er ekki að þú ljúkir ferðalaginu sem önnur kona eða með skýrt svar við öllu. Ferðalagið snýst um að þú finnir betur fyrir sjálfri þér og eigir auðveldara með að taka eftir því hvað þú þarft, hvað þig langar í og hvað skiptir þig máli.
Þegar tengingin við líkamann verður skýrari getur það birst í einföldum en mikilvægum augnablikum í daglegu lífi. Þú tekur fyrr eftir þegar þú þarft að hægja á, ert komin yfir eigin mörk eða segir já við einhverju sem þú vilt ekki. Það getur orðið auðveldara að treysta eigin tilfinningu, tjá það sem er til staðar og velja út frá sjálfri þér.
Þessi tenging snýst þó ekki bara um þarfir og mörk. Hún getur líka opnað fyrir meiri gleði, löngun, leik, sköpun, nánd og kraft — meira af því sem lætur þig finna fyrir lífinu.
Þú tekur ekki með þér eina rétta leið sem þú þarft að fylgja, heldur eigin reynslu af ólíkum leiðum sem þú getur snúið aftur til þegar þú þarft á þeim að halda.
Ég leiði þig í gegnum ferðalagið
Ég heiti Sara og hef starfað á sviði heilsu og sjálfsræktar frá árinu 2015. Frá upphafi hef ég leitt námskeið og unnið með bæði líkamlega og andlega heilsu. Síðustu sex ár hefur áherslan í minni vinnu færst meira að tengingunni við líkamann og líkamsmiðuðum leiðum.
Ég hef lært heilsumarkþjálfun og einkaþjálfun og lokið jógakennaranámi, Yin Fascia Yoga-námi og námi í sómatískri og líkamsmiðaðri vinnu.
Síðustu rúm tvö ár hef ég unnið mikið með 9D Breathwork og leitt fjölbreytt öndunarferðalög, bæði í hópum og á netinu.
Þessi reynsla kemur þó ekki aðeins úr námi. Yin- og fascia yogað hjálpaði mér að hægja á eftir kulnun, róa taugakerfið og finna aftur tenginguna við líkamann. Öndunarvinna, hreyfing og sómatísk vinna hafa síðan orðið mikilvægir hlutar af mínu eigin ferðalagi og mótað hvernig ég mæti og leiði aðrar konur.
Í MEET HER langar mig að skapa nærandi rými fyrir þig. Þú færð skýra leiðsögn en líka svigrúm til að hlusta á sjálfa þig, fara á þínum hraða og velja hvað hentar þér. Þú þarft ekki að deila meira en þú vilt eða upplifa eitthvað ákveðið til að eiga heima í hópnum.
Það skiptir mig máli að þú upplifir að þessi tími sé þinn — ekki enn eitt sem þú þarft að standa þig í. Rými þar sem þú þarft ekki að sinna, halda utan um eða mæta væntingum annarra, heldur mátt beina athyglinni aftur að þér.
MEET HER Netnámskeið
MEET HER netnámskeið er samfellt átta vikna ferðalag sem fer fram á lokuðu heimasvæði og í gegnum lifandi Zoom-fundi.
Ný vika opnast á hverjum mánudegi. Sumar vikurnar hittumst við saman á Zoom en aðrar vikur færðu fræðslu, upptökur og æfingar sem þú getur farið í gegnum heima á þeim tíma sem hentar þér.
DAGSETNINGAR
26. október–20. desember 2026
LIVE-FUNDIR Á ZOOM
Mánudagur 26. október kl. 19:30–21:00
Opnun, fræðsla og ásetningur
Mánudagur 9. nóvember kl. 19:30–21:30
9D Breathwork — Abundance & Self-Trust
Mánudagur 23. nóvember kl. 19:30–21:30
9D Breathwork — The Sovereign Breath
Mánudagur 14. desember kl. 19:30–21:00
Lokafundur og næstu skref
Innifalið í ferðalaginu
-
Samfellt átta vikna online ferðalag
-
Fjórir lifandi Zoom-fundir
-
Tvö live 9D Breathwork-ferðalög
-
Upptökur af Spiral Yin, MOVE og MEET
-
Leidd hugleiðsla og hljóðupplifun í RECEIVE
-
Fræðsla, journaling-spurningar og einfaldar æfingar í hverri viku
-
Upptökur af live-fundunum aðgengilegar innan lokaða hópsins
-
Vikulegir tölvupóstar sem leiða þig áfram í gegnum ferðalagið
-
Aðgangur að öllu efninu til 17. janúar 2027
Orð frá konum sem hafa verið í tímum hjá mér
„Upplifunin mín hefur verið alveg einstök. Mér finnst eins og ég hafi náð að tengjast sjálfri mér á ný eftir að hafa upplifað ákveðna fjarlægð frá sjálfri mér vegna amsturs. Tímarnir veita mér ró og svigrúm og mér finnst eins og þetta sé gjöf frá mér til mín.“
Edith
Námskeið hjá Söru
„Ég get bara sagt vá! Eftir tímann gat ég farið út í rigninguna og losað um margar tilfinningar sem höfðu setið fastar lengi. Þessi tegund af jóga og nærvera Söru gerði svo mikið fyrir mig.“
Hafdís
Yin-jóga
„Nú er komin vika síðan ég fór í fyrsta 9D öndunarferðalagið og ég er enn að upplifa róna og friðinn sem ég fann strax eftir tímann. Sara heldur utan um ferðalagið af fagmennsku og hlýju. Hún hefur þægilega, róandi nærveru og ég get heilshugar mælt með tímunum hjá henni.“
Berglind Björk
9D Breathwork
Gefðu þér þessar átta vikur
MEET HER Online er boð um að gefa þér rými sem er þitt — til að hægja á, finna betur fyrir þér og fara í gegnum samfellt ferðalag með hópi kvenna, óháð því hvar þú býrð.
SKRÁNINGU LÝKUR SUNNUDAGINN 25. OKTÓBER KL. 23:59
Kynningarverð fyrir fyrsta MEET HER Online-hópinn
Greitt í einu lagi: 40.900 kr.
Tvær greiðslur: 21.000 kr. í senn
Samtals með greiðsludreifingu: 42.000 kr.
Skráningin er fyrir allt átta vikna ferðalagið og aðgang að heimasvæðinu til 17. janúar 2027. Þegar ferðalagið hefst lokast hópurinn og ekki verður hægt að bætast við síðar.
Ath. Mörg stéttarfélög styrkja þátttöku í námskeiði sem þessu. Ef þú þarft nánari upplýsingar eða kvittun til að sækja um styrk geturðu sent mér tölvupóst á [email protected].
Staðgreiða
Greiðsludreifing
Tvær greiðslur að upphæð 21.000 kr.
Samtals 42.000 kr.
Fyrri greiðslan fer fram við skráningu og sú síðari 30 dögum síðar.
Algengar spurningar
Þarf ég að hafa reynslu og hvað er ætlast til af mér?
Hvernig virkar netferðalagið?
Hvað gerist ef ég kemst ekki á Zoom-fund?
Hvaða búnað þarf ég?
Þarf ég að vera með myndavélina opna eða deila með hópnum?
Er 9D Breathwork fyrir alla?
Hversu lengi hef ég aðgang að efninu?
Hvernig virka greiðslur og skilmálar?
Ekki til að verða önnur. Til að mæta sjálfri þér.
Ef þú finnur að nú sé kominn tími til að færa athyglina aftur að þér og gefa sjálfri þér þessar átta vikur, þá hlakka ég til að taka á móti þér í MEET HER Online og leiða þig í gegnum ferðalagið.
Ef þú ert óviss um hvort ferðalagið henti þér eða ert með spurningar máttu endilega senda mér línu á [email protected].
Skrá mig í MEET HER