6 VIKNA KVENNAFERÐALAG

 

MEET HER

 

Ekki til að verða önnur.

Til að mæta sjálfri þér.

Sex vikna ferðalag þar sem þú færð að tengjast sjálfri þér á annan hátt — ekki bara með huganum, heldur í gegnum beina upplifun líkamans.

Þú færð að hægja á, finna, hreyfa, hlusta, mæta sjálfri þér og taka á móti.

29. september–3. nóvember 2026
Þriðjudagar kl. 19:30 -21:30 · Bolholt 4, 4. hæð
Lítill hópur · 12 konur

Skrá mig í MEET HER

Kannski er ekkert að. En þú finnur að eitthvað vantar.

Þú heldur hlutunum gangandi. Þú sinnir, skipuleggur og sérð hvað þarf að gera. En dagarnir geta farið á sjálfstýringu og stundum ertu meira í höfðinu en líkamanum.

Þú tekur fljótt eftir því hvernig öðrum líður og hvað þeir þurfa, en átt erfiðara með að heyra hvað þú þarft sjálf eða hvað þig langar í. Þú saknar þess að finna meira fyrir þér og lífinu — meiri orku, löngun og tilhlökkun. Að vera meira þú sjálf og meira lifandi í eigin lífi.

Kannski þarftu einfaldlega rými til að hægja á, færa athyglina aftur að þér og finna betur hvað er til staðar.

Ekki bara að skilja — heldur að finna og upplifa

Við erum vön að leita svara með því að hugsa, greina og reyna að skilja. Það getur gefið okkur mikilvæga innsýn, en stundum þurfum við líka að hægja á og finna hvað er að gerast í líkamanum.

Í MEET HER notum við hreyfingu, öndun, kyrrð, skynjun og hljóð sem ólíkar leiðir inn í þína eigin upplifun. Þú þarft ekki að ná tökum á þeim eða vera góð í þeim.

Það er engin ein rétt upplifun og ekkert sem þú þarft að framkalla. Hver kona fer í sitt eigið ferðalag, á sínum hraða.

Þetta snýst ekki um að læra hvernig þú átt að vera, heldur að fá rými til að mæta sjálfri þér eins og þú ert.

Af hverju ég skapaði

MEET HER

 

Undanfarin ár hef ég unnið með öndun, hreyfingu, yin, skynjun, kyrrð og hljóð. Þótt þetta séu ólíkar leiðir hafa þær allar hjálpað mér að hægja á, komast úr höfðinu og finna betur fyrir sjálfri mér. Ég hef lært að heyra betur hvað ég þarf og hvað mig langar í og fundið meira frelsi til að hreyfa mig og tjá mig. Mér grunaði ekki fyrr en ég upplifði það sjálf hversu mikið tengingin við líkamann gæti auðgað lífið — ekki bara fært mér meiri ró, heldur líka gleði, löngun og lífskraft.

Ég skapaði MEET HER vegna þess að mig langar að deila þessu með öðrum konum. Ekki sem aðferðum sem þú þarft að læra eða ná tökum á, heldur sem ólíkum leiðum til að tengjast sjálfri þér í gegnum líkamann og finna hvað virkar vel fyrir þig.

Ferðalagið er líka boð um að finna betur fyrir þinni eigin upplifun af því að vera kona og tengjast kvenlegu orkunni í þér. Fyrir mér snýst kvenleg orka ekki um að vera alltaf mjúk, róleg eða á einhvern ákveðinn hátt. Hún getur birst í kyrrð og mýkt, en líka í krafti, gleði, löngun, hreyfingu og tjáningu. Hún fær að líta út eins og hún lítur út hjá þér.

Þess vegna verða kvöldin í MEET HER ólík. Sum verða róleg og nærandi, önnur kraftmeiri og full af hreyfingu, tónlist og tjáningu. Saman mynda þau ferðalag sem snýst ekki bara um að finna meiri ró, heldur um að finna meira fyrir sjálfri þér og lífinu.

 

 

Ferðalagið heldur áfram á milli tímanna

 

MEET HER er eitt samfellt sex vikna ferðalag. Kvöldin sem við eigum saman eru hjartað í því, en þráðurinn heldur áfram inn í dagana á milli.

Í upphafi færðu fallega glósubók sem verður þín í gegnum ferðalagið. Þar geturðu skrifað niður það sem kemur upp, eigin hugleiðingar og það sem þú vilt muna. Á milli kvöldanna færðu einnig stuttan innblástur eða einfalda æfingu sem tengist vikunni og hjálpar þér að halda áfram að kanna það sem þú upplifðir um kvöldið.

Hvað gætir þú tekið með þér úr MEET HER?

 

Markmiðið með MEET HER er ekki að þú farir heim sem önnur kona eða með skýrt svar við öllu. Ferðalagið snýst um að þú finnir betur fyrir sjálfri þér og eigir auðveldara með að taka eftir því hvað þú þarft, hvað þig langar í og hvað skiptir þig máli.

Þegar tengingin við líkamann verður skýrari getur það birst í einföldum en mikilvægum augnablikum í daglegu lífi. Þú tekur fyrr eftir þegar þú þarft að hægja á, ert komin yfir eigin mörk eða segir já við einhverju sem þú vilt ekki. Það getur orðið auðveldara að treysta eigin tilfinningu, tjá það sem er til staðar og velja út frá sjálfri þér.

Þessi tenging snýst þó ekki bara um þarfir og mörk. Hún getur líka opnað fyrir meiri gleði, löngun, leik, sköpun, nánd og kraft — meira af því sem lætur þig finna fyrir lífinu. Þú tekur ekki með þér formúlu sem þú þarft að fylgja, heldur eigin reynslu af leiðum sem þú getur snúið aftur til þegar þú þarft á þeim að halda.

Er MEET HER fyrir þig?

 

Þetta ferðalag gæti verið fyrir þig ef þig langar að:
  • finna meira öryggi í líkamanum og eiga auðveldara með að slaka á
  • vera meira til staðar í líkamanum og eigin lífi, í stað þess að lifa mest í huganum

  • heyra betur hvað þú þarft og hvað þig langar í

  • hlusta betur á innsæið og treysta því sem þú finnur og velur

  • finna meiri gleði, löngun og lífskraft í eigin lífi

  • upplifa meira frelsi til að hreyfa þig, tjá þig og vera þú sjálf

  • finna betur fyrir sjálfri þér sem konu, á þinn eigin hátt

  • gefa þér tíma til að hægja á, taka á móti og finna stuðning í hópi kvenna

Þú þarft ekki að sjá þig í öllu þessu eða vita nákvæmlega hverju þú ert að leita að. Það er nóg að þig langi að gefa sjálfri þér þessar sex vikur og vera opin fyrir að prófa ólíkar leiðir til að tengjast þér.

Ég leiði þig í gegnum ferðalagið

Ég heiti Sara og hef starfað á sviði heilsu og sjálfsræktar frá árinu 2015. Frá upphafi hef ég leitt námskeið og unnið með bæði líkamlega og andlega heilsu. Síðustu sex ár hefur áherslan í minni vinnu færst meira að tengingunni við líkamann og líkamsmiðuðum leiðum.

Ég hef lært heilsumarkþjálfun og einkaþjálfun og lokið jógakennaranámi, Yin Fascia Yoga-námi og námi í somatískri og líkamsmiðaðri vinnu.

Síðustu tvö og hálft ár hef ég unnið mikið með 9D Breathwork og leitt fjölbreyttar öndunarferðir, bæði í hópum og á netinu.

Þessi reynsla kemur þó ekki aðeins úr námi. Yin- og fascia jógað hjálpaði mér að hægja á eftir kulnun, róa taugakerfið og finna aftur tenginguna við líkamann. Öndunarvinna, hreyfing og sómatísk vinna hafa síðan orðið mikilvægir hlutar af mínu eigin ferðalagi og mótað hvernig ég mæti og leiði aðrar konur.

Í MEET HER langar mig að skapa nærandi rými fyrir þig. Þú færð skýra leiðsögn en líka svigrúm til að hlusta á sjálfa þig, fara á þínum hraða og velja hvað hentar þér. Þú þarft ekki að deila meira en þú vilt eða upplifa eitthvað ákveðið til að eiga heima í hópnum.

Það skiptir mig máli að þú upplifir að þessi tími sé þinn — ekki enn eitt sem þú þarft að standa þig í. Þegar við gefum okkur sjálfum rými til að nærast og tengjast okkur eigum við líka meira að gefa fólkinu okkar, án þess að ganga stöðugt á eigin forða.

MEET HER — haustið 2026

 

Við hittumst sex þriðjudagskvöld í röð í fallegu rými í Bolholti. Hópurinn verður lítill og lokaður og aðeins 12 konur komast að.

 

DAGSETNINGAR


29. september–3. nóvember 2026

TÍMI


Þriðjudagar kl. 19:30–21:30

STAÐSETNING


Bolholt 4, 4. hæð, Reykjavík

HÓPURINN


Lokaður hópur fyrir 12 konur

Innifalið í ferðalaginu

  • sex tveggja tíma kvöldstundir og samfellt ferðalag í sex vikur
  • Spiral Yin, frjáls hreyfing, tvö 9D Breathwork-ferðalög, sómatísk upplifun og tónheilun með Lovísu Kristínu
  • falleg glósubók sem verður þín í gegnum ferðalagið
  • stuttur innblástur eða einföld æfing á milli kvöldanna

Orð frá konum sem hafa verið í tímum hjá mér

 

„Upplifunin mín hefur verið alveg einstök. Mér finnst eins og ég hafi náð að tengjast sjálfri mér á ný eftir að hafa upplifað ákveðna fjarlægð frá sjálfri mér vegna amsturs. Tímarnir veita mér ró og svigrúm og mér finnst eins og þetta sé gjöf frá mér til mín.“

Edith
Námskeið hjá Söru

„Ég get bara sagt vá! Eftir tímann gat ég farið út í rigninguna og losað um margar tilfinningar sem höfðu setið fastar lengi. Þessi tegund af jóga og nærvera Söru gerði svo mikið fyrir mig.“

Hafdís
Yin-jóga

„Nú er komin vika síðan ég fór í fyrsta 9D öndunarferðalagið og ég er enn að upplifa róna og friðinn sem ég fann strax eftir tímann. Sara heldur utan um ferðalagið af fagmennsku og hlýju. Hún hefur þægilega, róandi nærveru og ég get heilshugar mælt með tímunum hjá henni.“

Berglind Björk
9D Breathwork

Gefðu þér þessar sex vikur

MEET HER er boð um að gefa þér rými sem er þitt — til að hægja á, finna betur fyrir þér og fara í gegnum þetta ferðalag í litlum hópi kvenna.

Verð

Greitt í einu lagi: 66.000 kr.

Tvær greiðslur: 34.000 kr. í senn 

Samtals með greiðsludreifingu: 68.000 kr.

 

Hópurinn er lokaður og 12 konur komast að. Skráningin er fyrir allt sex vikna ferðalagið.

Greiða í einu

66.000 kr.

 

Þú þarft að samþykkja skilmálana til að halda áfram.

Greiðsludreifing

Tvær greiðslur að upphæð 34.000 kr.
Samtals 68.000 kr.

Fyrri greiðslan fer fram við skráningu og sú síðari 30 dögum síðar.

Algengar spurningar

Ekki til að verða önnur. Til að mæta sjálfri þér

 

Ef þú finnur að nú sé kominn tími til að færa athyglina aftur að þér og gefa þér þetta rými, þá hlakka ég til að taka á móti þér í MEET HER.

 

Skrá mig í MEET HER