UM OKKUR

Ólíkar leiðir. Sameiginleg sýn.

 

Sjálfið stendur fyrir heildræna sýn á manneskjuna — huga, líkama og sál.

Við trúum því að heilsa okkar og líðan mótist af samspili hugsana, líkama, lífsvenja, reynslu og þeirra mynstra sem við berum með okkur — og að breytingar sem endast verði til þegar við horfum á heildina.

Þess vegna er Sjálfið ekki bundið við eina aðferð. Hér mætast námskeið, leiðsögn, heilsuvinna, hugarfar, líkamsmiðuð vinna, öndun og bein upplifun.

 
Okkar saga

 

Sara stofnaði Sjálfið og byggði það upp í kringum námskeið, hreyfingu, jóga, öndun og tengingu við sjálfið.

Þegar Jens varð síðar meðeigandi færði hann með sér sína reynslu, heildrænu nálgun og sýn. Við komum að þessari vinnu úr ólíkum áttum en deilum sömu forvitni um manneskjuna og það sem raunverulega hefur áhrif á hvernig okkur líður.

Við erum par, meðeigendur Sjálfsins og leiðum 9D Breathwork saman. Jafnframt leiðir hvort okkar sín eigin verkefni þar sem ólík reynsla okkar og áherslur fá að njóta sín.

Sara Barðdal

 

Sara hóf feril sinn á sviði hreyfingar, heilsuræktar og markþjálfunar. Með tímanum leiddi áhuginn hana lengra inn í tengslin milli huga, líkama, tilfinninga og þeirra mynstra sem móta hvernig við upplifum okkur sjálf og lífið.

Í dag skapar Sara námskeið og leiðir persónuleg ferðalög, hópupplifanir, kvennaferðir og 9D Breathwork. Í vinnu hennar mætast fræðsla, leiðsögn, hugarfar, hreyfing, öndun, líkamsmiðuð vinna og bein upplifun.

Það sem heillar hana mest er vinnan sem gerist undir yfirborðinu — þegar við sjáum mynstrin okkar skýrar, hlustum betur á eigin þarfir og byggjum upp meira traust á okkur sjálfum.

Menntun og þjálfun

• Heilsumarkþjálfi
• Somatic Sexologist
• Somatic Embodiment facilitator
• Yoga- og yin yoga-kennari
• 9D Breathwork facilitator
• Kundalini Activation facilitator
• ÍAK einkaþjálfari

Jens Kr. Guðmundsson

 

Jens er menntaður læknir og sérfræðingur í háls-, nef- og eyrnalækningum. Áhugi hans hefur um árabil beinst að heildrænni nálgun, lífsstíl og þeim undirliggjandi þáttum sem geta haft áhrif á orku og líðan.

Hann hefur meðal annars sótt nám hjá Institute for Functional Medicine, American Academy of Anti-Aging Medicine og Kresser Institute.

Þótt læknismenntunin móti skilning hans á líkamanum starfar Jens í dag ekki sem læknir og þjónusta hans er ekki læknisþjónusta.

Í heildrænni heilsuvinnu sinni horfir hann á heildarmyndina og vinnur með heildrænt heilsumat, einstaklingsmiðuð plön, ráðleggingar, stuðning og eftirfylgni. Markmiðið er að styðja fólk í að skilja eigin heilsu betur og finna skýra og raunhæfa leið áfram.

Jens þróar einnig námskeið og undirbýr nú heildrænt heilsuferðalag fyrir karla sem byggir á grunnstoðum heilsu og raunhæfum lífsstílsbreytingum sem hægt er að viðhalda til lengri tíma.

Samhliða heilsuvinnunni hefur Jens bakgrunn í leiklist og sviðsframkomu. Hann stundaði leiklistarnám við Stella Adler í Los Angeles og lærði spuna hjá International Theatre Stockholm.

Sá bakgrunnur hefur mótað hvernig hann miðlar, tengist fólki og kemur fram. Hann vinnur nú að fyrirlestrum og erindum fyrir fyrirtæki þar sem áhugi hans á heilsu og mannlegri hegðun mætir reynslu hans af sviði og miðlun.

Það sem sameinar okkur

 

Við vinnum á ólíkan hátt en deilum sömu sýn: að breytingar nái lengra þegar við horfum á manneskjuna sem heild og mætum henni af forvitni, virðingu og trausti.

Leiðir til að vinna með okkur

 

Með Söru

...............

Námskeið, persónuleg ferðalög og öndunarupplifanir fyrir þig sem vilt vinna með hugarfar, mynstur og tengingu við sjálfið.

Hafðu samband í gegnum [email protected]

 

Með Jens

................

Heildræn heilsuvinna fyrir þig sem vilt skoða heilsuna í stærra samhengi og finna skýra, einstaklingsmiðaða leið áfram.

 

Skoða þjónustu

Hópar og fyrirtæki

...............

9D Breathwork, fyrirlestrar og sérsniðnar upplifanir fyrir einkahópa, vinnustaði og fyrirtæki.

Sendu okkur fyrirspurn á [email protected]