Innri ró

Finnst þér eins og þú sért alltaf að halda áfram, jafnvel þegar líkaminn biður um pásu?

 

6 vikna ferðalag fyrir þig sem þarft meira rými, ró og tengingu við sjálfa/n þig.

🌿 Aðgangur í 12 vikur — á þínum hraða, heima hjá þér.

 


✨ Gefðu þér ró, nærveru og mýkt

Innri ró er mjúkt online prógram sem styður þig í að hægja á, róa taugakerfið og finna aftur tengingu við sjálfa/n þig.

Í gegnum yin yoga, 9D öndunarferðalög og hugleiðslur færðu verkfæri sem hjálpa þér að sleppa takinu á streitu, skapa meira innra öryggi og finna meiri ró í daglegu lífi.

 

Ég er tilbúin

 

Fyrir þig sem...

  • nærð ekki alveg að slaka, jafnvel þegar þú hefur tíma til þess
  • finnur fyrir streitu eða spennu í líkamanum
  • ert alltaf að hugsa um næsta verkefni
  • gefur öðrum meira pláss en sjálfri/sjálfum þér
  • þráir meiri ró, nærveru og tengingu

 

Ég er tilbúin

"

Í febrúar sl. var ég komin á mjög slæman stað þegar mér var bent á 9D breathwork og fór þá í einkatíma hjá Söru, en sá tími breytti lífi mínu meira en allar aðrar meðferðir og lyf sem ég hafði prófað áður.

"

Ég upplifði þetta ferðalag ótrúlega magnað og krefjandi. Grét í endann en róaðist fljótlega og upplifði rosa léttleika tilfinningu eftir á og mikla vellíðan. Aldrei fundið þetta áður en ótrúlega góð tilfinning ❤️ takk fyrir mig 🥰

Innri ró er þitt eigið rými til að lenda.

Þegar lífið verður of mikið.

Þegar hugurinn nær ekki að slaka.

Þegar líkaminn kallar á meiri hvíld.

Þú getur opnað eina hugleiðslu.
Farið í eina yin æfingu.
Eitt öndunarferðalag.

Og gefið þér nokkrar mínútur til að koma aftur heim til þín.

🌿 Fyrir þig sem finnur að líkaminn nær ekki alveg að slaka

Kannast þú við að vera alltaf að halda áfram?

Að hugurinn sé stöðugt að hugsa um næsta verkefni, næsta hlut sem þarf að gera eða næsta vandamál sem þarf að leysa?

Kannski nærðu að setjast niður í sófann á kvöldin — en innra með þér er samt ekki ró.

Þú finnur fyrir spennu í líkamanum.
Þreytu sem hverfur ekki alveg.
Eða tilfinningu eins og þú sért alltaf aðeins á varðbergi.

Þegar við lifum lengi undir álagi verður það oft nýja eðlilega ástandið.
Við tökum jafnvel ekki alltaf eftir því fyrr en líkaminn byrjar að kalla á meiri hvíld, ró og endurheimt.

Innri ró var skapað fyrir akkúrat þetta.

Í gegnum yin yoga, 9D öndunarferðalög og hugleiðslur færðu einföld og áhrifarík verkfæri sem hjálpa þér að hægja á, losa um spennu og skapa meira öryggi og jafnvægi í taugakerfinu.

Þetta snýst ekki um að bæta enn einu verkefninu á listann.

Heldur að gefa þér rými til að anda, lenda og tengjast aftur sjálfri/sjálfum þér.

 


 

💛 Skilaboð frá mér

Ég skapaði Innri ró út frá eigin reynslu.

Eftir langvarandi álag og að hafa gefið meira af mér en ég hafði til að gefa fann ég að líkaminn minn var farinn að segja stopp.

Ég þurfti að læra að hægja á.
Að hlusta.
Að byggja mig upp aftur.

Ekki með meiri aga, meiri pressu eða því að reyna meira.

Heldur með mýkt.
Öndun.
Nærveru.
Og því að gefa líkamanum loksins það sem hann hafði verið að biðja um.

Yin yoga, öndun og hugleiðsla urðu grunnurinn að minni eigin endurheimt.
Þau hjálpuðu mér að róa taugakerfið, losa um spennu og finna aftur tenginguna við sjálfa mig.

Það er akkúrat það sem Innri ró er byggt á.

Ef þú finnur að þú þarft meira rými, meiri ró og tækifæri til að hlaða batteríin aftur — þá er þetta rými skapað fyrir þig. 🤍

 

Í hverri viku færðu aðgang að:

🧘‍♀️ Yin yoga tíma

Mjúk og slakandi hreyfing til að losa spennu og örva orku

🌬️ 9D öndunarferðalagi

Umbreytandi innri ferðalag með hljóðtækni, öndun og dýpri tengingu

🧠 Hugleiðslum

Stutt og öflug leið til að styrkja núvitund og innri frið

✨ Gefðu þér þessa gjöf

Alls færðu aðgang að:

🌿 6 yin yoga tímum
🌬️ 6 9D öndunarferðalögum
🕊️ 12 leiðandi hugleiðslum

Nýtt efni opnast í hverri viku í 6 vikur og þú hefur aðgang að öllu efninu í 12 vikur, þannig að þú getur farið í gegnum prógrammið á þínum hraða og snúið aftur í efnið þegar þér hentar.

 

🤍 Þú þarft ekki að bíða eftir fríi til að fá að slaka á

Þú þarft ekki að klára allt fyrst.

Þú þarft ekki að "vinna þér inn" hvíldina.

Þú mátt byrja núna.

Með einni öndun.
Einni hugleiðslu.
Einum tíma fyrir þig.

Ég vil tryggja mér sæti

🌿 Hvað gætir þú upplifað með Innri ró?

Innri ró er meira en safn af tímum og æfingum.

Þetta er rými þar sem þú færð tækifæri til að hægja á, anda dýpra og tengjast aftur sjálfri/sjálfum þér.

Með reglulegri iðkun upplifa margir:

🌿 Meiri ró í líkama og taugakerfi
Líkaminn fer að upplifa meira öryggi og minna álag, sem getur hjálpað þér að slaka betur á og bregðast öðruvísi við streitu.

🕊️ Minni spennu og meira rými innra með þér
Þú lærir að sleppa aðeins takinu á því sem þú hefur verið að halda í og gefa líkamanum tækifæri til að endurhlaða sig.

🌬️ Losun á uppsöfnuðum tilfinningum og streitu
Öndunarferðalögin hjálpa þér að vinna með það sem hefur safnast upp og skapa meira flæði, léttleika og skýrleika.

💛 Dýpri tengingu við sjálfa/n þig
Þú ferð að heyra betur í eigin þörfum, innsæi og innri rödd — og mætir sjálfri/sjálfum þér af meiri mildi.

Meiri nærveru í daglegu lífi
Margir finna fyrir betri svefni, meiri orku og aukinni getu til að njóta augnabliksins í stað þess að vera stöðugt að hugsa um það næsta.

🌱 Verkfæri sem nýtast áfram
Þetta er ekki skyndilausn heldur safn af verkfærum sem þú getur leitað í aftur og aftur þegar lífið verður krefjandi eða þú þarft að finna leiðina heim til þín.

🌿 Þetta er fyrir þig sem:

• Finnst erfitt að slaka á, jafnvel þegar þú hefur tíma til þess

• Finnur fyrir streitu, spennu eða ert farin/n að nálgast kulnun

• Ert þreytt/ur á að vera alltaf að halda áfram

• Þráir meiri ró, nærveru og tengingu við sjálfa/n þig

• Vilt gefa líkamanum tækifæri til að hlaða sig upp aftur

• Langar að byggja upp heilbrigðari venjur sem styðja þig til lengri tíma

• Vilt hafa einföld verkfæri sem þú getur notað þegar lífið verður krefjandi

• Finnur að það sé kominn tími til að velja þig aðeins meira 💛

💛 Þetta færðu:

• 6 yin yoga tíma sem hjálpa líkamanum að hægja á og losa spennu

• 6 djúp 9D öndunarferðalög

• 12 leiðandi hugleiðslur

• Aðgang að öllu efninu í 12 vikur

• Sveigjanlegt prógram sem þú getur unnið með á þínum hraða

• Leiðsögn frá Söru og verkfæri sem styðja við rólegra taugakerfi

• Rými til að byggja upp nýjar venjur sem nýtast áfram í daglegu lífi

"

Kæra Sara. Þetta er í annað sinn sem ég fer í gegnum þetta námskeið hjá þér á rúmlega ári og ég finn hvað það gerir mér gott. Þessi tegund af jóga er fullkomið fyrir mig til að efla heilsuna og til að fá enn meira út úr námskeiðinu ætla ég að taka hverja stöð 2x áður en ég færi mig upp í næstu stöð. Það eru ekki bara æfingarnar sem eru góðar heldur ert þú einstaklega góð að miðla þeim. Þótt þú sért bara á skjánum þá uppifi ég ótrúlega hlýja og góða strauma í kringum þig, þá þætti manneskjunnar sem ég met sífellt meir. Hjartans þakkir.

Bryndís

Yin yoga þátttakandi

"

Vá hvað þetta var góð hugleiðsla ❤️🧘‍♀️ tárin í augunum og fiðing í magann ❤️ ég ætla að hlusta á þessa aftur 🙏 - Birta

"

Finnst þessi dásamleg og kraftmikil 💜 Búin að hlusta á nokkura daga fresti og upplifi svo magnaða hluti í hvert sinn 😊 - Agnes

"

Takk fyrir þessa hugleiðslu ❤ ég þurfti að kveðja smá ótta/kvíða sem hafði læðst til mín í formi blóms svo gott að ná sleppa honum og finna fyrir létti yndislegt❤ - Karin

✨ Kannski er kominn tími til að velja þig aðeins meira

Þú þarft ekki að bíða eftir fríi.

Þú þarft ekki að klára allt fyrst.

Og þú þarft ekki að "vinna þér inn" hvíldina.

Stundum er stærsta gjöfin sem við getum gefið okkur einfaldlega að stoppa aðeins, anda og hlusta.

Innri ró var skapað fyrir þau augnablik.

Fyrir tímabilin þegar líkaminn kallar á meiri ró.
Þegar hugurinn er orðinn þreyttur á að vera alltaf á ferðinni.
Og þegar eitthvað innra með þér veit að það er kominn tími til að gefa sjálfri/sjálfum þér aðeins meira pláss.

🌿 Þegar þú skráir þig færðu:

✨ Aðgang að efninu strax eftir skráningu
🌿 6 vikur af yin yoga, 9D öndunarferðalögum og hugleiðslum
🕊️ Aðgang að öllu efninu í 12 vikur svo þú getir farið í gegnum það á þínum hraða

Ef þú finnur að þú þarft meira rými, meiri ró og meiri tengingu við sjálfa/n þig...

þá gæti þetta verið fallegur staður til að byrja. 🤍

👉 Skráðu þig og byrjaðu þegar þér hentar.