9D HÁDEGISRÓ

 

Klukkutími til að hægja, slaka á og hlaða batteríin.

Fjögur róleg 9D Breathwork ferðalög í hádeginu frá miðjum nóvember og fram í desember.

Þú velur það þema og þá dagsetningu sem hentar þér og gefur þér stund þar sem ekkert annað þarf að gerast.

Bolholt 4 · kl. 12:00 til 13:00 · 6.500 kr.

Bóka tíma

Stund þar sem ekkert annað þarf að gerast

Það þarf ekki alltaf að gerast eitthvað stórt.

Stundum er það dýrmætasta sem við getum gefið okkur einfaldlega að leggja allt frá okkur, loka augunum og leyfa líkamanum að hægja á.

Mig hefur lengi langað að prófa 9D Breathwork í styttra og aðgengilegra formi yfir daginn. Rými þar sem þú getur komið inn, lagst niður og leyft leiðsögninni að taka við í klukkutíma.

Þú þarft ekki að mæta með neitt sérstakt markmið.

Kannski finnur þú fyrir þreytu eða spennu. Kannski hefur verið mikið álag. Kannski ert þú á tímabili þar sem líkaminn kallar á meiri hvíld og endurheimt. Eða kannski langar þig einfaldlega að gefa þér góða stund og upplifa 9D Breathwork í rólegra formi.

Þú kemur eins og þú ert.

Hvað er 9D Hádegisró?

9D Hádegisró er röð fjögurra rólegra 9D Breathwork ferðalaga sem fara fram í hádeginu frá miðjum nóvember og fram í desember.

Í hverjum tíma liggur þú þægilega með heyrnartól og ert leidd áfram í gegnum öndun, tónlist, rödd og marglaga hljóðupplifun.

Ferðalögin eru valin með ró, slökun, nærveru og endurheimt að leiðarljósi.

Þetta eru því ekki sömu kröftugu ferðalög og sumir þekkja úr lengri kvöldtímum þar sem áherslan getur verið á djúpa tilfinningavinnu og losun.

Upplifunin getur vissulega farið djúpt en hér er megináherslan á að hægja á, koma aftur að líkamanum og gefa honum rými til að slaka.

 

Fyrir hverja er 9D Hádegisró?

Það skiptir ekki máli hvernig dagarnir þínir líta út eða hvort þú ert í vinnu, heima, í námi, í veikindaleyfi eða á tímabili þar sem þú þarft að fara sérstaklega vel með orkuna þína.

9D Hádegisró gæti hentað þér ef þú:

  • Finnur fyrir streitu, spennu eða þreytu

  • Átt erfitt með að hægja á, jafnvel þegar þú hefur tíma til þess

  • Ert í endurheimt eftir annasamt eða krefjandi tímabil

  • Ert í veikindaleyfi og langar að gefa þér rólega og nærandi stund

  • Þráir meiri ró og tengingu við líkamann

  • Vilt gefa þér tíma þar sem ekkert þarf að leysa eða laga

  • Ert forvitin um 9D Breathwork en vilt byrja á rólegra ferðalagi

  • Þekkir 9D Breathwork og langar að upplifa mýkri ferðalög

 

Veldu þitt ferðalag

Fjögur mismunandi ferðalög verða í boði.

Hvert þeirra hefur sitt eigið þema en þau eiga það öll sameiginlegt að bjóða þér að leggja allt annað frá þér í smástund og koma aftur að sjálfri eða sjálfum þér.

Þú getur valið eitt ferðalag sem kallar sérstaklega á þig eða komið oftar og gefið þér reglulega stund til að staldra við yfir annasaman árstíma.

Lesa skilmála

Nervous System Reset

Miðvikudagurinn 18. nóv  kl 12:00 - 13:00

Bolholt 4, 4 hæð 

Þú sest loksins niður, en finnur að þú ert enn á fullu. Kjálkinn er spenntur, axlirnar uppi og hugurinn þegar kominn að því næsta sem þarf að gera. Þótt þú hafir fengið hlé getur verið erfitt að finna fyrir hvíldinni.

Þegar mikið hefur mætt á okkur getur þessi spenna orðið svo kunnugleg að við tökum varla eftir henni fyrr en við reynum að slaka á. Við höldum áfram að skipuleggja, vera til taks og sinna því sem bíður, jafnvel þegar við höfum loksins tíma fyrir okkur sjálf.

Nervous System Reset er rólegra 9D Breathwork ferðalag fyrir þig sem tengir við þessa upplifun. Hér færðu stund til að hægja á og beina athyglinni að því hvernig þér líður, án þess að þurfa að halda utan um allt á meðan.

 

Þetta ferðalag gæti kallað á þig ef þú:

✨ finnur að þú ert alltaf tilbúin/n í næsta verkefni, jafnvel þegar þú átt frí

✨ tekur eftir að þú herpir kjálkann, lyftir öxlunum eða heldur niðri í þér andanum yfir daginn

✨ sinnir mörgu og mörgum en gefur þér sjaldan almennilegt hlé

✨ átt erfitt með að slaka á fyrr en allt er búið, en það er alltaf eitthvað eftir

✨ langar að finna meiri ró í líkamanum og geta notið þess þegar þú færð stund fyrir þig

 

Að leyfa sér að slaka á

Ferðalagið er að mestu rólegt, með mjúkri, taktfastri öndun, tónlist og leiðsögn sem hjálpar þér að beina athyglinni að líkamanum. Inn á milli kemur stuttur virkari kafli með munnöndun, svo þú mátt búast við bæði ró og virkni.

Þú færð tækifæri til að taka eftir hvar þú spennir þig og kanna hvort þú getir gefið aðeins eftir. Engin verkefni að klára, enginn sem þarf svar frá þér og ekkert sem þú þarft að sanna.

Það sem þú tekur með þér gæti verið minni spenna, meiri ró eða skýrari tilfinning fyrir því hvenær þú þarft hlé. Að taka fyrr eftir öxlunum sem eru komnar upp að eyrum eða finna að þú megir staldra við áður en þú heldur áfram.

Ef þú ert þreytt/ur á að vera alltaf á fullu, ertu velkomin/n í Nervous System Reset. Gefðu þér stund þar sem þú þarft ekki að vera til taks.

 

 

Down Regulation and Regeneration

Miðvikudagurinn, 25 nóv, kl 12:00 - 13:00

Bolholt 4, 4 hæð. 

Stundum er maður þreyttur á að þurfa sífellt að ákveða, skipuleggja og halda utan um allt. Jafnvel þegar það gefst tími til að hvílast fer hugurinn að telja upp það sem mætti nýta stundina í.

Kannski ertu vön/vanur að taka eftir því hvað aðrir þurfa, en átt erfiðara með að gefa eigin þreytu sama vægi. Þú heldur áfram aðeins lengur og ætlar að hvílast þegar betur stendur á.

Down Regulation and Regeneration er mjúkt 9D Breathwork ferðalag þar sem þú færð að leggja ábyrgð dagsins frá þér um stund. Hér leiðir röddin þig áfram og þú færð rými til að hvílast, hlusta og sýna þér umhyggju.

 

Þetta ferðalag gæti kallað á þig ef þú:

✨ finnur að þú hefur lítið eftir að gefa þegar þú ert búin/n að sinna öllum öðrum

✨ ert þreytt/ur en átt samt erfitt með að leyfa þér að hvílast

✨ saknar þess að fá stund þar sem ekkert er ætlast til af þér

✨ vilt nálgast eigin líðan með meiri mildi og minni kröfum

✨ vilt kynnast öndunarvinnu á rólegan hátt eða velja mýkri upplifun

 

Hvíld sem fær að hafa sitt pláss

Hæg öndun, tónlist og leidd slökun einkenna ferðalagið. Ímyndun er stór hluti upplifunarinnar og þér er meðal annars boðið að mæta yngri útgáfu af þér með hlýju og horfa til þess hvernig þú vilt hafa það fram á við.

Þótt ferðalagið sé rólegt getur það snert við tilfinningum og minningum. Þú færð tækifæri til að taka eftir því sem kemur upp og kanna hvernig væri að mæta þér með meiri skilningi.

Kannski tekurðu með þér meiri mildi í eigin garð eða leyfi til að gera aðeins minna. Kannski verður skýrara hvers þú saknar eða hvað myndi næra þig í hversdeginum. Það má líka vera nóg að hafa fengið góða hvíld.

Þú þarft ekki að bíða þar til allt er búið. Komdu í Down Regulation and Regeneration og gefðu þér tíma til að þiggja umhyggju.

9DMT Cellular Regeneration

 

Miðvikudagurinn 2. des - kl 12:00 - 13:00 

Bolholt 4, 4 hæð 

Þegar mikið hefur gengið á getur hvíldin orðið að einhverju sem við ætlum að sinna seinna. Líkaminn er þreyttur, hálsinn stífur eða axlirnar spenntar, en við klárum samt eitt í viðbót áður en við stoppum.

Og þegar við stoppum loksins er ekki alltaf auðvelt að skipta um gír. Við tökum upp símann, förum yfir verkefnin í huganum eða höldum áfram að sinna öllu öðru en okkur sjálfum.

9DMT Cellular Regeneration er 9D Breathwork ferðalag fyrir þig sem langar að stíga út úr hversdeginum og sökkva þér í leiddan heim hljóðs, öndunar og ímyndunar. Hér færðu rými til að beina athyglinni að líkamanum og gefa þér stund sem snýst um hvíld og umhyggju.

 

Þetta ferðalag gæti kallað á þig ef þú:

✨ finnur fyrir þreytu eða spennu eftir annasamt tímabil

✨ langar í hlé frá skjám, verkefnum og stöðugu áreiti

✨ nýtur leiddrar hugleiðslu, frásagna og lifandi ímyndunar

✨ átt auðveldara með að slaka á þegar rödd og tónlist leiða athyglina áfram

✨ saknar þess að gefa líkamanum athygli án þess að gera kröfur til hans

 

Láttu leiða þig um stund

Það sem einkennir þetta ferðalag er ævintýraleg frásögn. Leiðsögnin tekur þig í ímyndað ferðalag um frumskóg, helli og vatnsveröld, þar sem myndir af vatni, ljósi og náttúru fylgja athyglinni um líkamann.

Upplifunin er að mestu róleg, með virkari augnablikum. Hún snertir einnig á gömlum tilfinningum og þörfinni fyrir að finna að maður eigi umhyggju skilið. Þú þarft ekki að sjá allt skýrt fyrir þér; þú getur fylgt orðunum, hljóðunum og því sem þú tekur eftir.

Þú gætir fundið meiri mýkt í líkamanum, ró í huganum eða einfaldlega notið þess að fá að vera í upplifun þar sem ekkert þurfti að leysa. Fyrir suma felst gildi stundarinnar í að taka eftir eigin líðan og gefa henni loksins næði.

Ef þig langar að leggja hversdaginn frá þér um stund, ertu velkomin/n í 9DMT Cellular Regeneration. Komdu, lokaðu augunum og leyfðu þér að fylgja leiðsögninni.

 

Anchor to Presence

 

Miðvikudagurinn 9. des. kl 12:00 - 13:00

Bolholt 4, 4 hæð

Þú ert að gera eitt en hugsa um þrennt annað. Ferð yfir eitthvað sem þú sagðir í gær, skipuleggur morgundaginn og tekur svo eftir að þú hefur varla heyrt það sem manneskjan fyrir framan þig var að segja.

Þegar athyglin er sífellt á ferðinni getur verið erfitt að njóta þess sem er að gerast núna. Jafnvel í frítíma heldur hugurinn áfram að undirbúa, rifja upp eða leita að einhverju sem þarf að laga.

Anchor to Presence er rólegt 9D Breathwork ferðalag fyrir þig sem langar að staldra við og finna meiri nærveru í því sem þú ert að gera. Að geta hlustað, hvílst eða notið einfaldrar stundar án þess að vera alltaf komin/n eitthvað annað í huganum.

 

Þetta ferðalag gæti kallað á þig ef þú:

✨ ert oft skrefi á undan í huganum eða föst/fastur í einhverju sem er þegar liðið

✨ átt erfitt með að einbeita þér að einu án þess að hugsa um allt hitt

✨ tekur upp símann eða finnur þér verkefni um leið og það verður smá kyrrð

✨ tekur lítið eftir eigin líðan fyrr en þreytan eða spennan er orðin mikil

✨ langar að vera meira til staðar í samtölum, hvíld og litlu stundunum í deginum

 

Að finna leið til baka í augnablikið

Með mjúkri öndun, tónlist og leiðsögn færðu einföld viðmið til að beina athyglinni að: andardráttinn, skynjun í líkamanum og það sem þú tekur eftir á þessari stundu.

Þú þarft ekki að tæma hugann eða hætta að hugsa. Æfingin felst í að taka eftir þegar hugurinn fer af stað og finna leið til baka, án þess að skamma þig fyrir að hafa misst þráðinn.

Það sem þú kannar hér getur átt erindi inn í hversdaginn. Að taka eftir þegar þú ert farin/n að hafa áhyggjur af morgundeginum í miðju samtali. Að finna fæturna á gólfinu, anda og hlusta aftur. Að leyfa góðri stund að fá athygli þína á meðan hún er að gerast.

Ef þig langar að vera meira með í því sem er að gerast hér og nú, ertu velkomin/n í Anchor to Presence. Gefðu þér stund til að staldra við.

 

Hvað er 9D Breathwork?

9D Breathwork er leiðandi upplifun sem sameinar öndun, tónlist, rödd og marglaga hljóðhönnun í heyrnartólum.

Þú liggur þægilega á meðan þú fylgir leiðsögninni og leyfir athyglinni smám saman að færast frá hugsununum og yfir í líkamann og augnablikið sem er hér núna.

Hljóðheimurinn er hannaður til að umlykja þig og hjálpa þér að sökkva dýpra inn í upplifunina.

Þú þarft ekki að kunna að hugleiða, hafa reynslu af öndunarvinnu eða vera góð manneskja í að slaka á.

Þú fylgir einfaldlega leiðsögninni eins og hentar þér og mátt alltaf hægja á önduninni eða fara aftur í þinn eðlilega andardrátt.

 

Hvernig fer tíminn fram?

Við byrjum á stuttri innleiðingu þar sem ég fer yfir ferðalagið og það sem gott er að hafa í huga.

Síðan kemur þú þér þægilega fyrir, leggst niður og setur á þig heyrnartólin.

Þegar ferðalagið hefst þarftu ekki lengur að fylgjast með tímanum eða hugsa um hvað kemur næst. Þú fylgir röddinni, önduninni og hljóðinu og leyfir upplifuninni að þróast á þinn hátt.

Í lokin gefum við okkur rólega stund til að lenda áður en tímanum lýkur.

 

Hvað gæti ég upplifað?

Upplifun hvers og eins er ólík og getur einnig verið mismunandi frá einu ferðalagi til annars.

Þú gætir fundið fyrir djúpri slökun, meiri ró, mýkt í líkamanum eða tilfinningu fyrir meira rými innra með þér.

Þú gætir líka tekið eftir hugsunum, tilfinningum eða spennu sem þú hafðir ekki veitt athygli áður.

Sumir finna fyrir skýrleika eða endurnæringu. Aðrir finna að líkaminn kallar á meiri hvíld eftir ferðalagið.

Og stundum er upplifunin einfaldlega klukkutími þar sem þú færð að liggja, anda og vera.

Það er engin ein rétt upplifun og ekkert sérstakt þarf að gerast.

 

 

Skilmálar varðandi breytingar og afbókun: 

 

Þar sem það eru takmörkuð sæti laus í hvern tíma er ekki hægt að afbóka samdægurs eða rétt fyrir tíman og fá endurgreiðslu. Ef eitthvað kemur uppá getur þú gefið öðrum eða selt þitt sæti sjálf/ur. Ef fyrirvarinn er lengri en 24 klst, getur þú átt tímann þinn inni og mætt í næsta lausa tíma í staðinn.