ÓKEYPIS LEIÐARVÍSIR OG HUGLEIÐSLA

AFTUR AÐ ÞÉR

Fyrir þig sem hefur verið svo lengi að sinna öllu í kringum þig að þú átt orðið erfiðara með að heyra hvað þú þarft og hvernig þér líður í raun.

Fáðu fallegan leiðarvísi og 19 mínútna hugleiðslu sem hjálpa þér að staldra við, beina athyglinni aftur að sjálfri þér og mæta því sem er til staðar af meiri mildi.

Eftir skráningu opnast síða þar sem þú getur sótt leiðarvísinn og hlustað á hugleiðsluna. Þú færð einnig link á síðuna sendan í tölvupósti svo þú getir komið aftur að efninu síðar.

We won't send spam. Unsubscribe at any time.

LÍTIL STUND FYRIR ÞIG

Það gerist oft hægt að við missum tenginguna við okkur sjálfar. Við höldum áfram, sinnum því sem þarf að sinna og tökum jafnvel ekki eftir eigin þörfum fyrr en líkaminn fer að kalla hærra.

Í þessari gjöf færðu:

• Leiðarvísinn AFTUR AÐ ÞÉR með 7 merkjum um að þú sért komin langt frá sjálfri þér.

• Einfalda 5 mínútna æfingu sem hjálpar þér að stoppa og finna aftur fyrir þér.

• Hugleiðsluna Elskaðu þig alla — 19 mínútna rými til að beina athyglinni inn á við og mæta þér af meiri mildi.

Þetta er ekki verkefnalisti sem þú þarft að klára. Þetta er einfaldlega lítið rými fyrir þig til að stoppa, hlusta og koma aðeins nær sjálfri þér.

Með skráningu færðu aðgang að efninu og tölvupósta frá Sjálfinu. Þú getur afskráð þig hvenær sem er.