Persónulegt 1:1 ferðalag

 

Þú finnur að það er kominn tími til að velja sjálfa þig aftur.

Fyrir konur sem eru tilbúnar að stíga út úr gömlum mynstrum, treysta sér meira og skapa breytingar sem koma innan frá.

4 einkatímar yfir 2 mánuði + persónulegur stuðningur á milli funda.

Sækja um

Þú finnur að það er kominn tími til að velja sjálfa þig aftur

 

Kannski ertu á tímamótum.

Kannski finnurðu að eitthvað þarf að breytast, en sérð ekki alveg hvert næsta skref er.

Kannski ertu að lenda í sömu mynstrunum aftur og aftur, hvort sem það er í samböndum, vinnu eða lífinu almennt.

Kannski hefurðu verið að gefa svo mikið af þér að þú hefur misst tengingu við eigin þarfir, eigin rödd eða eigin sannleika á leiðinni.

Kannski finnurðu að þú ert föst í gömlu fari og þráir meiri skýrleika, meira frelsi eða meiri lífskraft.

Eða kannski ertu að ganga í gegnum breytingar, krefjandi tímabil eða mikilvæga ákvörðun og finnur að þig langar ekki að þurfa að ganga í gegnum það ein.

 

Þú ert ekki að leita að einhverjum sem segir þér hvað þú eigir að gera.

 

Þú ert að leita að rými til að heyra betur í sjálfri þér.

 

Rými til að staldra við.

Rými til að sjá það sem þú hefur ekki séð áður.

Og stuðning á meðan þú stígur inn í næsta kafla lífsins.

Þetta er ekki fast prógram.

Og það er engin uppskrift sem allir fara eftir.

Hver kona kemur inn með sína sögu, sínar áskoranir og sína löngun til breytinga.

Þess vegna er ferðalagið sérsniðið að þér.

Saman skoðum við það sem er raunverulega lifandi í þínu lífi núna.

Það sem er að halda aftur af þér.

Mynstrin sem halda áfram að endurtaka sig.

Hindranirnar sem þú rekst aftur og aftur á.

Og það sem er að reyna að fæðast í gegnum þig á næsta kafla lífsins.

Í gegnum samtöl, speglun og verkfæri sem eru valin út frá þínum þörfum vinnum við að því að skapa meiri skýrleika, meira sjálfstraust og sterkari tengingu við sjálfa þig.

Markmiðið er ekki að verða önnur manneskja.

Markmiðið er að verða meira þú.

Hvað felst í ferðalaginu?

 

Ferðalagið spannar tvo mánuði og er hannað til að veita þér bæði rými til að vinna í dýpt og stuðning á meðan lífið gerist.

Það inniheldur:

• Persónulegan stuðning á milli funda í gegnum skilaboð eða voice notes

• 4 x 60 mínútna einkatíma aðra hvora viku

• Speglun, verkfæri og verkefni sem eru valin út frá þér og þinni stöðu

• Rými til að vinna með það sem er raunverulega lifandi í þínu lífi hverju sinni

Þó að hvert ferðalag sé einstakt vinnum við oft með þemu eins og:

• Sjálfstraust og innri rödd

• Sambönd, mörk og sjálfsvirði

• Endurtekin mynstur og hindranir

• Takmarkandi trú og hugarfar

• Breytingar, tímamót og næstu skref

• Tengingu við líkama, tilfinningar og innsæi

Í ferlinu notum við þau verkfæri sem henta hverri konu hverju sinni, svo sem samtal, speglun, hugarfarsvinnu, líkamsvitund, öndun, hugleiðslur og önnur verkfæri sem styðja við það sem hún er að vinna með á hverjum tíma.

Þetta er ekki fast prógram eða fyrirfram ákveðin leið.

Ferðalagið mótast af því sem er lifandi í þínu lífi hverju sinni og þeim breytingum sem þú ert tilbúin að stíga inn í.

Fyrir hverja er þetta?

 

Þetta ferðalag er fyrir konur sem finna að þær eru tilbúnar fyrir breytingu.

Konur sem vita að þær geta ekki haldið áfram alveg eins og þær hafa verið að gera.

Konur sem eru tilbúnar að líta inn á við af heiðarleika, forvitni og ábyrgð.

Þetta gæti verið fyrir þig ef:

• Þú finnur að þú ert föst í gömlum mynstrum sem halda áfram að endurtaka sig

• Þú hefur misst tengingu við eigin þarfir, eigin rödd eða eigin sannleika

• Þú setur reglulega þarfir annarra á undan þínum eigin

• Þú ert á tímamótum og finnur að eitthvað vill breytast

• Þú þráir meiri skýrleika, sjálfstraust og lífskraft

• Þú vilt læra að treysta sjálfri þér meira

• Þú finnur að það er kominn tími til að velja sjálfa þig aftur

Þetta ferðalag hentar best konum sem eru tilbúnar að mæta sjálfum sér af heiðarleika og taka virkan þátt í eigin ferli.

Það er ekki hugsað sem skyndilausn eða fyrir þá sem leita að einhverjum til að segja sér hvað þær eiga að gera.

Markmiðið er ekki að gefa þér svörin.

Markmiðið er að hjálpa þér að finna þín eigin svör.

Sækja um

Hver er Sara?

 

Í gegnum árin hef ég stutt hundruð einstaklinga í gegnum breytingar, áskoranir og innri vinnu.

Ég hef starfað sem heilsumarkþjálfi, einkaþjálfari, yoga kennari, öndunarleiðbeinandi og handleitt fólk í gegnum fjölbreytt ferðalög sem snúa að líkama, hugarfari og tengingunni við sjálft sig.

En það sem hefur kennt mér mest hefur ekki komið úr námskeiðum eða vottunum.

Það hefur komið úr lífinu sjálfu.

Úr breytingum, missi, samböndum, áskorunum og þeim tímabilum þar sem ég hef þurft að finna leiðina aftur heim til mín.

Í dag vinn ég út frá þeirri trú að flest okkar þurfi ekki fleiri svör.

Við þurfum meira rými til að staldra við.

Rými til að heyra í okkur sjálfum.

Þess vegna snýst þetta ferðalag ekki um að ég segi þér hvað þú eigir að gera.

Heldur um að skapa rými þar sem þú getur tengst sjálfri þér af meiri skýrleika, sjálfstrausti og tengingu við eigin leið.

Umsókn

 

Ég tek aðeins við örfáum konum í einu svo ég geti veitt hverri konu þá athygli, nærveru og stuðning sem þetta ferðalag krefst.

Þess vegna byrja öll ferðalög með umsókn.

Umsóknin hjálpar okkur að sjá hvort þetta sé rétti tíminn fyrir þig og hvort ég sé rétta manneskjan til að styðja þig á þessum tímapunkti í lífinu.

Ef þú finnur að það er kominn tími til að velja sjálfa þig aftur, þá býð ég þér að fylla út umsóknina hér fyrir neðan.

Ég les allar umsóknir sjálf og hef samband ef ég tel að þetta ferðalag henti þér.

Sækja um ferðalagið